
Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins ÍBV - Haukar (Miðvikudagur 18:30) / Sigurvegari: Haukar Haukar virtust vera með síðasta leik í teskeið á Ásvöllum en ÍBV nær að loka vörninni í síðari hálfleik og koma sér aftur inn í leikinn og vinna hann að lokum. Haukar gerðu vel í að loka á Söndru Erlings en í staðinn opnaðist fyrir Birnu Berg sem skoraði hvorki meira né minna en 16 mörk, getur hún endurtekið leikinn í kvöld? Ég held að Stebbi og Díana nái að loka fyrir það sem fór úrskeiðis á laugardaginn og mæti til Eyja og vinni aftur óvænt! Valur - Fram (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur Ég sagði það í þætti Handkastsins að séns Frammara var að stela sigri í fyrsta leik sem tókst ekki. Hafdís Renötudóttir vaknaði í marki fram í leik nr. 2 þar sem Fram sá aldrei til sólar og ég reikna með að það verði sama upp á teningnum í kvöld og Valur muni sópa Fram út úr úrslitakeppninni 3-0.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.