
Egill Jónsson hefur framlengt samning sinn við Hauka til næstu ára. Egill sem er uppalinn Haukamaður hefur verið viðloðinn meistaraflokk Hauka undanfarin ár ásamt því að vera lykilmaður í U-liði og 3. fl félagsins. Egill verður 19 ára í sumar en hann getur bæði leikið sem hornamaður og skytta hægra megin enda örvhentur. Einnig hefur Egill verið viðloðandi yngri landslið Íslands en síðasta sumar var hann hluti af U-19 ára landsliðinu sem hafnaði í öðru sæti á Opna Evrópumótinu. "Það verður gaman að fylgjast áfam með Agli á parketinu á Ásvöllum og sjá hann halda áfram að þroskast og bæta sig sem handboltaleikmaður á komandi tímabili" segir í tilkynningu frá Haukum nú í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.