

Lokahóf handknattleiksdeildar KA og KA/Þórs fór fram í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi en þar gerðu karlalið KA og kvennalið KA/Þórs upp tímabilið. Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Sólveig Lára Kristjánsdóttir voru kjörin bestu leikmenn liðanna en Bjarni átti frábæran vetur í gula og bláa búningnum en hann var í vetur valinn besti leikmaður Olísdeildarinnar ásamt því að vera næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar og sá stoðsendingahæsti. Sólveig Lára var algjör lykilmaður í varnarleik KA/Þórs og í vetur gerði hún enn betur því hún lék einnig stærra hlutverk í sóknarleik liðsins. Jens Bragi Bergþórsson og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir voru svo valin efnilegustu leikmenn liðanna en þrátt fyrir ungan aldur hafa þau bæði verið í lykilhlutverki í meistaraflokki undanfarin ár og eru stöðugt vaxandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.