
Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Stjarnan - Grótta (Fimmtudag 16:00) / Sigurvegari: Stjarnan Frábært einvígi þessara tveggja liða sem hafa sýnt okkur að þau eiga svo sannarlega bæði heima í deild þeirra bestu. Stjarnan náði að svara fyrir sig í síðasta leik og hefna fyrir tapið í fyrsta leik. Markmenn liðanna hafa verið stjörnunar þessa einvígis og ég held það verði sama uppá teningnum á morgun, alvöru leikur með fáum mörkum. Stjarnan mun taka þetta að lokum, dyggilega studd af heimafólki og vinna með þrem mörkum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.