
Ómar Ingi Magnússon er þriðji markahæsti leikmaður þýsku Bundesligunnar þegar sex umferðir eru eftir. Danski landsliðsmaðurinn, Mathias Gidsel er lang markahæsti leikmaður deildarinnar með 250 mörk en Kai Hafner leikmaður Stuttgart er annar með 223 mörk. Ómar Ingi Magnússon er þriðji með 201 mark en þetta eru einu þrír leikmennirnir sem hafa skorað yfir 200 mörk í vetur. Haukur Þrastarson er síðan níundi markahæsti leikmaður deildarinnar með 161 mark. Sjötta síðasta umferðin í deildinni hefst í kvöld með tveimur leikjum þar sem þrjú Íslendingalið verða í eldlínunni. Göppingen fær RN Löwen í heimsókn og Füchse Berlin fær Gummersbach í heimsókn. Hér að neðan má sjá lista yfir 10 markahæstu leikmenn þýsku úrvalsdeildarinnar:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.