Allt undir í Meistaradeildinni: Sæti í Final 4 í húfi

Það er komið að úrslitastund í Meistaradeild kvenna, þar sem seinni leikirnir í átta liða úrslitum skera úr um hvaða lið komast í FINAL4 sem fram fer í Búdapest.

Þó eitt einvígi sé nánast búið er staðan í örðum einvígum hnífjöfn og ljóst að dramatíkin verður allsráðandi þegar liðin ganga til leiks um helgina.

Györ - Odense | Laugardagur 25.apríl kl 14:00
Fyrri leikur: 36-28
Györ tekur á móti Odense með átta marka forskot úr fyrri leik liðanna. Þrátt fyrir að tölurnar gefi til kynna örugga stöðu er sagan ekki endilega svo einföld. Í fyrri leiknum var Odense lengi vel betra liðið, stjórnaði tempóinu og fékk færi til að byggja upp forskot. En þegar leið á leikinn fór að halla undan fæti – mistök í sókn og léleg varnarvinna opnuðu dyrnar fyrir Györ, sem refsaði miskunnarlaust. Reynslan og breiddin hjá ungverska stórliðinu kom bersýnilega í ljós í seinni hálfleiknum, þar sem þær tóku yfir leikinn með hraða og nákvæmni. Nú þarf Odense nánast fullkomna frammistöðu til að snúa taflinu við á útivelli – verkefni sem fá lið í Evrópu hafa ráðið við gegn Györ enda hefur ungverska liðið ekki tapað í 8-liða úrslitum frá árinu 2015.

Metz - FTC | Laugardagur 25.apríl kl 16:00
Fyrri leikur: 31-31
Metz og FTC mætast í einvígi sem er algjörlega galopið eftir 31:31 jafntefli í fyrri leik liðanna. Þar var Metz lengi með undirtökin og virtist ætla að taka með sér forskot í seinni leikinn á heimvelli, en frábær innkoma Blönku Böde-Bíró í marki FTC breytti gangi leiksins. Ungverska liðið fékk trú á verkefninu og náði að jafna í blálokin. Nú færist leikurinn til Metz, þar sem heimaliðið hefur verið afar sterkt í vetur. Spurningin verður hvort Metz nái að stjórna hraðanum betur og koma í veg fyrir hraðaupphlaup FTC, eða hvort gestirnir ná að endurtaka baráttuna og stela úrslitum á útivelli. Þetta einvígi gæti hæglega ráðist á örfáum smáatriðum.

CSM Búkarest - Esbjerg | Sunnudagur 26.apríl kl 14:00
Fyrri leikur: 25-26
CSM Búkarest bíður erfið prófraun gegn Esbjerg, sem vann fyrri leikinn með minnsta mun. Leikurinn í Danmörku var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu, þar sem bæði lið skiptust á að hafa frumkvæðið. Esbjerg náði þó að kreista fram sigur í lokin, þökk sé meðal annars frammistöðu Henny Reistad, sem enn og aftur sýndi hvers vegna hún er talin ein besta handknattleikskona álfunnar. CSM sýndi þó að liðið hefur burði til að vinna þetta einvígi – þær jöfnuðu undir lokin og fengu færi til að komast yfir, en klúðruðu lokasókninni. Nú á heimavelli, fyrir framan háværa stuðningsmenn, munu þær reyna að snúa taflinu sér í vil. Þetta er klassískt 50/50 einvígi þar sem úrslitin gætu ráðist á síðustu sekúndum leiksins.

Brest - Bistrita | Sunnudagur 26.apríl kl 14:00
Fyrri leikur: 36-35
Brest tekur á móti Gloria Bistrita eftir nauman eins marks sigur í fyrri leik liðanna í Rúmeníu. Fyrri leikurinn var opinn og mikið markaskor, þar sem varnir beggja liða áttu erfitt uppdráttar. Brest virtist ætla að slíta sig frá með nokkurra marka forskoti, en Bistrita neitaði að gefast upp og kom sér aftur inn í leikinn með kraftmiklum lokakafla. Þær fengu meira að segja tækifæri til að jafna í lokin, en náðu ekki að nýta það. Brest hefur meiri reynslu og breidd, en Bistrita hefur sýnt að liðið getur bitið frá sér gegn sterkustu liðum Evrópu. Ef franska liðið nær ekki að herða varnarleikinn gæti þetta einvígi hæglega snúist rúmenska liðinu í vil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top