Þráinn Orri Jónsson sem var að ljúka sínu sjötta tímabili með Haukum segist ekki vita hvað tekur við hjá sér á ferlinum en samningur hans við Hauka rennur út í sumar. Haukar féllu úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins í síðustu viku þegar liðið féll úr leik gegn FH, 3-1. Þráinn Orri gekk í raðir Hauka frá Bjerringbro-Silkeborg í Danmörku sumarið 2020 en þar áður lék hann með Elverum í Noregi. Þráinn er uppalinn í Gróttu en hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Íslands og þá fór hann á eitt stórmót með íslenska landsliðinu en varð fyrir því óláni að slíta krossband á EM 2022. ,,Eins og staðan er núna þá veit ég ekki alveg hvað tekur við. Ég hef ekki rætt við Hauka eða aðra um framahdlið. Mögulega held ég áfram eða hætti en ég held öllu opnu,” sagði Þráinn í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.