Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Valur - FH (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: FH Búinn að kvíða þessari spá í nokkra daga. Hvernig á maður að geta giskað á hvort liðið vinnur í þessu einvígi. Liðin enduðu í fyrsta og öðru sæti deildarinnar í vetur og skiptu sigrunum í deildinni sín á milli. Lykilatriði fyrir FH í þessu einvígi er að klára sóknirnar sínar og fá ekki Valsmenn hratt í bakið á sér. Ég held að það hjálpi FH í þessu einvígi að hafa fengið fleiri alvöru leiki í úrslitakeppninni og það mun nýtast þeim á morgun þegar þeir fara á Hlíðarenda og vinna fyrsta leikinn í einvíginu og taka forystu 1-0

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.