Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals segir að það skipti litlu máli þegar leikurinn hefst í kvöld hvort Valur hafi fengið lengri pásu heldur en FH í aðdraganda úrslitaeinvígisins sem hefst í Valsheimilinu í kvöld. Valur og FH mætast í fyrsta leik úrslitaeinvígisins klukkan 19:30 í kvöld en leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. ,,Ég held að þetta gæti verið hörku einvígi. Mér finnst þetta álík lið, bæði lið með unga og efnilega uppalda stráka sem hafa verið að spila stór hlutverk. Við sjáum Ómar Darra hjá FH hefur verið frábær og sama með Garðar Inga og þeir hafa verið algjörir lykilmenn hjá þeim. Við erum með unga og mjög efnilega leikmenn og síðan eru bæði lið með reynslu bolta í bland við þessa ungu stráka. Ég held að þetta gæti orðið hnífjafnt," sagði Ágúst Jóhannsson í viðtali við Handkastið í vikunni á blaðamannafundi sem HSÍ og Olís héldu í aðdraganda úrslitaeinvígisins. Margir veltu því fyrir sér eftir að Valur tryggði sér í úrslitin að það myndi henta þeim betur að mæta FH heldur en Haukum. Var Gústi feginn að mæta FH? ,,Ég get alveg sagt þér það og það er algjörlega 100% hreinskilni. Bæði lið unnu sitthvoran leikinn í deildinni en við töpuðum illa gegn Haukum en á sama skapi þá langaði manni alveg eins mikið að mæta Haukum og reyna gera betur þar. Ég held að þetta séu bæði mjög sterkir andstæðingar og við fengum FH og við þurfum að undirbúa okkur vel." En hvar liggja styrkleikar FH-liðsins? ,,Mér finnst þér spila mjög góðan varnarleik og hafa tvo góða markverði. Við þurfum að finna lausnir á þeirra vörn. Síðan hafa þeir sterka einstaklinga sem eru gríðarlega öflugir, bæði skotmenn og maður á mann og síðan eru með þeir sterkan línumann í Jóni Bjarna. Þeir hafa mörg vopn og við verðum að vera tilbúnir í allt á móti þeim." Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.