
Valur og FH mætast í fyrsta leik úrslitaeinvígisins um Íslandsmeistaratitilinn í klukkan 19:30 í kvöld í N1-höllinni að Hlíðarenda en leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Sigursteinn Arndal þjálfari FH sagði í viðtali við Handkastið á dögunum að hann væri ánægður að hafa fengið góðan undirbúningstíma fyrir einvígið sem hefst í kvöld. FH-ingar lögðu Hauka 3-1 í undanúrslitaeinvíginu á meðan Valur vann KA 3-0. ,,Ég ætla ekki að leggja dóm á hitt hvort er betra eða verra (lengra eða styttra frí) en það var mjög gott að fá þessa viku, bæði helgina til að ná okkur og síðan höfum við átt góða viku núna. Við erum klárir." ,,Það eru allir að glíma við eitthvað en ég held líka á sama skapi þá verða allir klárir og kreista allt fram," sagði Sigursteinn Arndal sem segir að FH liðið mætti með fullt lið til leiks í leikinn gegn Val. Mikil umræða hefur verið um breiddina sem Sigursteinn Arndal hefur verið að nota í úrslitakeppninni og hafa margir velt því fyrir sér hvort hann sé hreinlega á skeiðklukkunni varðandi skiptingar. ,,Þetta er nú ekki allt á klukkunni en þetta snýst samt um það að treysta liðinu sínu. Við vitum að við erum með fullt af gæða leikmönnum og þegar þú ert að fara í svona einvígi sem getur farið í fimm leiki þá þarftu að sjá til þess að það sé alltaf orka á vellinum og menn séu að hámarka sig. Við völdum að gera þetta svona og höfum gert þetta alla úrslitakeppnina og höfum rúllað vel í gegnum tímabilið en við fundum eitthvað sem okkur leið vel með og stefnum á að halda því áfram." Í hverju eru Valur bestir? ,,Það er mjög auðvelt að taka hraðaupphlaupin þeirra sem einn af þeirra stærri kostum. Þeir eru virkilega öflugir þar og það verður ærið verkefni að koma í veg fyrir það." ,,Ég ætla ekki að neita því að það var frábær einvígi og stemningin upp á Ásvöllum síðasta föstudag og í Krikanum þar á undan var algjörlega geggjuð og gefur öllum mikið og stækkar félagið. Við erum að fara mæta Val sem er líka stórveldi í íslenskum handbolta með frábært lið. Það verður ekki erfitt að koma mönnum upp á tærnar fyrir þetta einvígi." Einhver skilaboð til FH-inga? ,,Ef það eiga góðir hlutir að gerast þá þurfum við allt félagið á bakvið okkur og orkan þarf að vera jákvæð og nálgunin þarf að vera jákvæð. Ég vona að við eigum eftir að sjá hátt í 1500 FH-inga fylgja okkur á Hlíðarenda."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.