Framlengir um 2 ár við uppeldisfélagið

Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson hefur framlengt samningi sínum við Fjölni til næstu tveggja ára.

Aðalsteinn hefur verið einn af lykilmönnum liðsins og átti frábært síðasta tímabil þar sem hann var valinn handboltamaður ársins hjá Fjölni árið 2025.

Aðalsteinn, sem er uppalinn Fjölnismaður, kom aftur til Fjölnis sumarið 2024 eftir tveggja ára veru hjá Stjörnunni og hefur síðan verið einn af máttarstólpum liðsins bæði innan vallar sem utan. Á liðinni leiktíð vakti hann mikla athygli fyrir frammistöðu sína í Grill 66 deildinni þar sem hann varð markakóngur deildarinnar. Einnig hefur hann verið að þjálfa yngri flokka hjá félaginu.

"Alli er einn af máttarstólpum liðsins og hefur sýnt það bæði á æfingum og í leik að hann býr yfir þeim gæðum og karakter sem þarf til að leiða liðið áfram. Við erum afar ánægðir með að hann haldi áfram í Fjölni og hlökkum til komandi tímabils“ segja Sveinn Þorgeirsson og Daníel Rúnarsson í tilkynningu frá Fjölni.

"Ég er einstaklega stoltur að halda áfram að vera partur af þeirri vegferð og uppbyggingu sem er að eiga sér stað í Fjölni“ segir Aðalsteinn í sömu tilkynningu frá Fjölni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top