Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu í sex marka sigri Blomberg Lippe gegn Thuringer í undanúrslitum um Þýskalandsmeistaratitilinn í dag en um var að ræða fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvíginu. Vinna þarf tvo leiki til að komast í úrslitaeinvígið. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði tvö mörk og þá skoraði Andrea Jacobsen eitt mark en Blomberg Lippe vann leikinn 31-25 eftir að hafa verið 13-10 yfir í hálfleik. Íslendingaliðið náði fljótlega sjö marka forystu í seinni hálfleik og þá var ekki aftur snúið og sex marka sigur staðreynd. Liðin mætast öðru sinni á sunnudaginn og með sigri þar getur Blomberg Lippe tryggt sér í úrslitaeinvígið en Blomberg Lippe eru ríkjandi deildarmeistarar. Í hinu undanúrslitaeinvíginu mætast Dortmund og Flames.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.