Kári Kvaran framlengir á Nesinu
Eyjólfur Garðarsson

Kári Kvaran hefur skrifað undir nýjan samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Hann gerir tveggja ára samning sem gildir til sumarsins 2028.

Kári er 24 ára gamall og er rétthentur hornamaður. Hann hefur leikið 74 leiki fyrir Gróttu og á nýafstöðu tímabili skoraði hann 54 mörk sem gerir 2,3 mörk að meðaltali í leik í Grill66-deildinni.

Grótta endaði í 2.sæti Grill66-deildarinnar með jafn mörg stig og Víkingur en voru með verri innbyrðisstöðu milli liðanna. Liðið fór því í umspil um laust sæti í Olís-deildinni en tapaði gegn Herði í undanúrslitum 2-0.

,,Það eru virkilega góð tíðindi að Kári verði áfram í Gróttu. Hann er klókur leikmaður með góða skottækni. Það verða miklar vonir bundnar við Kára á næstu leiktímabilum," segir í tilkynningunni frá Gróttu.

Miklar breytingar hafa orðið á liði Gróttu en fjölmargir leikmenn hafa yfirgefið liðið frá tímabilinu og þá hefur þjálfarateymið einnig hætt en Davíð Örn Hlöðversson og Lárus Gunnarsson stýrðu liðinu á síðustu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top