

Valur leiðir í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn eftir fjögurra marka sigur gegn FH í fyrsta leik úrslitaeinvígisins í Valsheimilinu í gærkvöldi 37-33. Staðan var jöfn í hálfleik 16-16. Í upphafi seinni hálfleiks var heldur betur umdeilt atvik sem átti sér stað þegar Jón Bjarni Ólafsson leikmaður FH fékk að líta rauða spjaldið frá dómurum leiksins, þeim Bjarka Bóassyni og Gunnari Óla Gústafssyni. ÉG FÆ ÞETTA ALDREI TIL AÐ VERA RAUTT SPJALD - Sigursteinn Arndal þjálfari FH var allt annað en ánægður með ákvörðun dómarana í viðtal eftir leik eftir að hafa séð atvikið í sjónvarpinu eftir leikinn. Nýttu dómararnir tæknina og fóru í VAR og eftir að hafa horft á atvikið ítrekað var þeirra ákvörðun að gefa Jóni Bjarna rautt spjald. Rætt var um atvikið í uppgjörsþætti Handkastsins:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.