Tímabilinu hjá Íslendingaliðinu, TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni er lokið en liðið bjargaði sér frá falli og leikur því áfram í deild þeirra bestu á næsta ári. Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson sem báðir léku saman í yngri landsliðum Íslands gengu í raðir félagsins fyrir tímabilið. Guðmundur Bragi frá Bjerringbro-Silkeborg á meðan Ísak Gústafsson gekk í raðir félagsins frá Val en hann er uppalinn á Selfossi. ,,Þetta tímabil er búið að vera mjög skemtilegt heilt yfir," sagði Ísak Gústafsson í samtali við Handkastið á dögunum. ,,Maður er búinn að fá að spila á móti mörgum góðum leikmönnum og upplifa alvöru stemningu í flestum höllum hérna úti. Það var síðan frábær upplifun að komast í bikarúrslitaleikinn á Final 4 helginni. Það var toppurinn á tímabilinu að mæta Álaborg í úrslitaleiknum," sagði Ísak en liðið komst óvænt alla leið í bikarúrslitin í Danmörku en tapaði þar gegn besta liði deildarinnar, Álaborg sem vann leikinn með tíu mörk 34-24. ,,Fyrsta árið er buið að vera frábært. Það kom mér mest á óvart hvað það eru mikið af leikmönnum sem eru góðir leikmenn sem maður hefur ekki séð mikið af eða heyrt um. En heilt yfir er ég sáttur með mitt fyrsta tímabil úti í atvinnumensku," sagði Ísak að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.