

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Grótta - Stjarnan (Sunnudagur 16:00) / Sigurvegari: Grótta Grótta á möguleika að tryggja sig í Olís deild kvenna á morgun. Þær voru frábærar á sumardaginn fyrsta í Garðabænum og átti Stjarnan fá svör við varnarleik þeirra. Ég held að þær haldi uppteknum hætti á morgun og vinni Stjörnuna á heimavelli og tryggi sér sæti í deild þeirra bestu. Stjarnan mun svo þurfa að bíða til 8.maí til að sjá hvort það verði fjölgað í deildinni til að sjá hvort þær haldi sæti sínu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.