Þórsarar að bæta við sig fjórða Dananum
Egill Bjarni Friðjónsson

Í þætti Handkastsins í síðustu viku var sagt frá því að nýliðar Þórs í Olís-deild karla á nýafstaðinni leiktíð væru langt komnir með að fá til sín fjórða danska leikmanninn til sín.

,,Þórsarar eru ekki hættir að styrkja sig og það eru áfram danskir dagar í Þorpinu. Þeir eru að fara ná sér í William Skovsager sem hefur spilað í færeysku deildinni undanfarin ár með Kyndil. Hann hefur skorað vel yfir 100 mörk síðustu tímabil,” sagði Stymmi klippari en Skovsager yrði fjórði Daninn sem myndi ganga í raðir Þórs.

Tveir ungir Danir í Þorpið

Þór semur við fyrrum danskan unglingalandsliðsmann

,,Það er eins og gott að dönskukennslan fyrir norðan sé almennileg því þjálfarinn er líka dönskumælandi," bætti Kristinn Björgúlfsson við.

,,Ég get sagt ykkur það að þessi leikmaður vildi koma til Íslands fyrir síðasta tímabil og ég horfði á nokkra leiki með honum í fyrra. Hann er langmarkahæsti leikmaður liðsins síðustu ár. Í fyrra skoraði hann 174 mörk og gaf 124 stoðsendingar. Færeyskir leikmenn hafa komið hingað til Íslands og gert vel en það sem ég horfði á í fyrra var þetta stundum eins og fullorðinn maður að spila gegn börnum. Það snerist allt um hann en þetta eru frábærar fréttir. Þórsurum vantar leikmenn og þeir eru ekki að sækja íslenska leikmenn og þetta er strákur sem er 187 cm á hæð og 105 kg. mögulega getur hann spilað bakvörð varnarlega," sagði Arnar Daði og bætti við að vonandi gæti Skovsager gefið Brynjari Hólm smá hvíld sóknarlega.

,,Ég skal segja ykkur það að William Skovsager er 100% betri en Igor Chesiliov, ég ætla að fullyrða það."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top