Ási Friðriks ekki á leið í Mosfellsbæinn
Kristinn Steinn Traustason

Á dögunum var Ásbjörn Friðriksson sagður koma til greina sem aðstoðarþjálfari Aftureldingu í Olís-deild karla en þetta kom til umræður í einum af uppgjörsþáttum Handkastsins.

Hrannar Guðmundsson fyrrum þjálfari Stjörnunnar er sagður vera líklegastur til að taka við karla en Jónantan Magnússon þjálfari KA/Þórs var sagður hafa neitað því að fara í viðræður við Aftureldingu um að taka við liðinu.

ER ÁSBJÖRN FRIÐRIKS Á LEIÐ Í MOSÓ?

Ásbjörn Friðriksson segist ekki vera á leið í Mosfellsbæinn þegar Handkastið hafði samband við hann.

,,Ég er ekki að fara að þjálfa hjá Aftureldingu," sagði Ásbjörn í samtali við Handkastið.

Ásbjörn lék lengst af á ferlinum með FH en lagði skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð en hann lék síðustu ár sín sem spilandi aðstoðarþjálfari FH. Í vetur hefur hann verið einn af sérfræðingunum í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans.

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafði Grótta einnig áhuga að fá Ásbjörn sem þjálfara karlaliðs félagsins en Ásbjörn afþakkaði það boð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top