

Færeyski landsliðsmarkvörðurinn, Annika Friðheim Petersen yfirgefur herbúðir EH Aalborg í sumar og gengur til liðs við pólska úrvalsdeildarliðið Enea MKS Gniezno. Hún hefur leikið með EH Aalborg síðan sumarið 2024 en hún gekk með og átti barn meðan hún var samningsbundinn liðinu. Hún hóf handboltaferil sinn hjá H71 í Færeyjum, þar sem hún steig sín fyrstu skref í meistaraflokki. Annika lék með Haukum tímabilið 2020/2021 og fyrri hluta tímabilsins 2021/2022 áður en hún gekk í raðir danska félagsins Nyköbing á miðju tímabili. Hún var einn af betri leikmönnum Olís-deildarinnar þegar hún lék hér á landi. Hún hefur verið fastamaður í færeyska landsliðinu frá árinu 2019 og tekið þátt í stórmótum eins og Evrópumótinu 2024 og á heimsmeistaramótinu árið 2025 þá rétt eftir að hafa átt barn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.