Norðurlöndin: Sävehof með sigur í fyrsta leik
Savehof

Undanúrslitin í Svíþjóð héldu áfram í kvöld en kvennalið Sävehof vann góðan sigur á Höörs HK í fyrsta leik liðanna.

Lokatölur urðu 31-28 á heimavelli Sävehof, Partille Arena en Elín Klara Þorkelsdóttir átti góðan leik eins og svo oft áður, hún skoraði sex mörk úr tíu skotum en þar af komu tvö mörk úr vítum og hún bætti einnig við tveimur stoðsendingum.

Næsti leikur liðanna fer fram á heimavelli Höörs fimmtudagskvöldið næstkomandi en þrjá sigra þarf til að komast í úrslitin.

Úrslit kvöldsins:

Sävehof 31-28 Höörs HK

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top