Víkingur 2 og Víðir leika í Grill66 deildinni á næstu leiktíð
Facebook

Þrátt fyrir að tveimur leikjum sé ólokið í 2.deild karla er ljóst að Víkingur 2 hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í 2.deildinni og þar með sæti í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Þá er einnig ljóst að Víðir fer upp í Grill66-deildina en Víðir vann Þór 2 í lokaleik sínum í deildinni með fjórum mörkum 33-29. Szymon Kowal var markahæstur í þeim leik með níu mörk og Tymon Ponto skoraði sjö mörk.

Víðir endaði með 20 stig í 2.sæti deildarinnar en Stjarnan 2 var með 16 stig. Víkingur 2 vann deildina með 24 stig en átta lið tóku þátt í 2.deildinni í vetur.

HBH og ÍH enduðu í neðstu sætunum í Grill66-deildinni og leika því í 2.deildinni á næstu leiktíð.

RÚV fjallaði um lið Víðis árið 2024 en liðið var að ljúka sínu fjórða keppnistímabili í 2.deild karla. Fyrsta árið endaði liðið með 0 stig í 2.deildinni. Ári síðar endaði liðið með tvö stig og í fyrra endaði liðið með tíu stig.

Félagið fékk til sín nokkra erlenda leikmenn fyrir tímabilið og hefur nú unnið sér keppnisrétt í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Einn af stofnendum handknattleiksdeildar Víðis, Orfeus Andreou yfirgaf þó liðið í lok janúar og gekk í raðir HK í Olís-deild karla. Hann skrifaði nýverið undir nýjan samning við HK en Handkastið hefur haft veður af því að mikið drama var í kringum vistaskipti Orfeus Andreou frá Víði yfir í HK.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top