Andri Sigfússon hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla til næstu tveggja ára. Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu. Andri tekur við liðinu af Davíð Erni Hlöðverssyni sem stýrði liðinu eitt tímabil eftir að hafa verið aðstoðarmaður Róberts Gunnarssonar í þrjú ár. Grótta endaði í 2. sæti í Grill 66 deildinni og laut í lægra haldi fyrir Herði í umspili um sæti í Olísdeildinni á næsta tímabili. ,,Það má með sanni segja að Andri sé einn af reyndustu og öflugustu þjálfurum Gróttu og því mikill fengur að fá hann sem þjálfara meistaraflokks. Andri hefur undanfarin tvö ár verið yfirþjálfari handknattleiksdeildarinnar og gegnt þar veigamiklu hlutverki við uppbyggingu handboltans í Gróttu. Fjölgun iðkenda hefur vakið athygli en í dag æfa rúmlega 400 krakkar handbolta í félaginu og fjölgunin 83% frá árinu 2020 til dagsins í dag og framtíðin sannarlega björt," segir í tilkynningunni frá Gróttu. Andri er einn af þjálfum íslenska U18 ára landsliðsins. ,,Stjórn handknattleiksdeildarinnar bindur miklar vonir við ráðningu Andra við uppbyggingu á meistaraflokksliði félagsins."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.