Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

ÍBV - Haukar (Þriðjudagur 18:00) / Sigurvegari: ÍBV

Þetta frábæra einvígi klárast í dag. Hefur verið virkilega gaman að fylgjast með þessum liðum berjast og verður synd að sjá á eftir öðru liðinu eftir leik kvöldsins. Haukar voru frábærar á laugardaginn og Sara Sif frábær í markinu hjá þeim meðan lykilmenn ÍBV náðu sér ekki á flug. Ég reikna með frábærri stemmningu í Eyjum í kvöld og Hvítu Riddararnir láta sjá sig og styðja sínar stelpur áfram í úrslitaeinvígið við Val. Heimavöllurinn verður munurinn á liðunum og ÍBV fer í úrslit eftir framlengdan leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top