
Undanúrslitin í Svíþjóð halda áfram í dag þegar báðar viðureignirnar fara fram. Tvö Íslendingalið eru í eldlínunni í sitthvoru einvíginu. Birgir Steinn Jónsson og félagar í Savehof eru 0-1 undir í einvígi sínu gegn Malmö en liðin mætast í Malmö í kvöld. Þá er Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í Kristianstad 0-1 undir í sínu einvígi gegn Alingsas en liðin mætast á heimavelli Alingsas einnig í kvöld. Á laugardaginn fara síðan fram leikir þrjú í einvígjunum en fyrir heimaleik Kristianstad gegn Alingsas á laugardaginn verða fjórir nýir leikmenn félagsins kynntir fyrir stuðningsmönnum. Um er að ræða þá Baldur Fritz Bjarnason sem kemur til félagsins frá ÍR, Andri Erlingsson sem kemur frá ÍBV og þá Niko Petrovic og Alexander Skoog. Eru stuðningsmenn Kristianstad hvattir til að mæta tímanlega á leikinn og taka vel á móti nýju leikmönnunum sem ganga í raðir félagsins í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.