Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Stjarnan - Grótta (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: Grótta

Allir leikir í þessu einvígi hafa unnist á útivelli og ég á rosalega erfitt með að veðja gegn svoleiðis tölfræði. Gróttu hefur liðið vel í Garðabæ í þessu einvígi og ég reikna með að þær leysi vandamálin sem voru að hrjá þær í síðasta leik og vinni Stjörnuna í þessum leik og tryggi sér sæti í Olís deildinni á næsta ári. Ég reikna með að spennustigið verði hátt í leiknum, það verði lítið skorað og leikurinn fari alla leið í framlengingu þar sem Grótta klárar dæmið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top