Úrslitakeppnin hélt áfram í Svíþjóð og Noregi í kvöld en Sävehof er komið í 2-0 í einvígi sínu gegn Höörs HK í kvennadeildinni á meðan Kolstad tapaði óvænt á heimavelli gegn Bergen í fyrsta leik liðanna. Sävehof unnu flottan úti sigur á Höörs HK, 25-28 en Elín Klara Þorkelsdóttir var frábær í liði gestanna. Hún skoraði átta mörk úr níu skotum þar af tvö úr vítum og bætti við þremur stoðsendingum en miðað við einkunnagjöf sænsku deildarinnar var hún besti maður vallarins. Staðan er núna 2-0 fyrir Sävehof sem geta komist í úrslitin með sigri í næsta leik sem fram fer í Partille Arena næstkomandi miðvikudagskvöld. Kolstad tapaði óvænt gegn Bergen á heimavelli sínum í kvöld en lokatölur leiksins urðu 30-33 en allir Íslendingarnir komu við sögu hjá Kolstad. Benedikt Gunnar Óskarsson var allt í öllu í sóknarleik liðsins en þrátt fyrir aðeins fjögur mörk úr ellefu skotum gaf hann heilar fjórtán stoðsendingar og bætti við einni brottvísun. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk úr þremur skotum á meðan Sigurjón Guðmundsson stóð í markinu lengst af í leiknum og varði sex skot af þeim tuttugu og sex sem hann fékk á sig eða 23% markvarsla. Úrslit kvöldsins: Höörs HK 25-28 Sävehof Kolstad 30-33 Bergen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.