

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Valur - FH (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: FH FH jafnaði einvígið í 1-1 með frábærum leik í Kaplakrika á mánudaginn. Valsmenn áttu þar fá svör við varnarleik FH-inga og mig grunar að þessi sigur gefi yngri leikmönnum FH mikið sjálfstraust inn í þetta einvígi. Jón Þórarinn mun fagna landsliðssæti sínu í kvöld með frábærum leik og ég held að FH haldi uppteknum hætti og vinni annan leikinn í röð í einvíginu en þurfi þó framlengingu til þess í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.