Fer Sæþór norður?
Eyjólfur Garðarsson

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa bæði KA og Þór sett sig í samband við Sæþór Atlason hægri hornamann Gróttu en samningur Sæþórs við Gróttu rennur út í sumar.

Sæþór gekk í raðir Gróttu fyrir tímabilið 2024/2025 og lék með liðinu í Olís-deildinni á síðustu leiktíð og í Grill66-deildinni í ár eftir að liðið féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð.

Bæði KA og Þór eru í leit af hægri hornamanni fyrir næstu leiktíð en Einar Rafn Eiðsson yfirgefur KA í sumar og flytur á höfuðborgarsvæðið og því er KA einungis með tvo örvhenta leikmenn í sínum leikmannahópi.

Sæþór skoraði 81 mark fyrir Gróttu í Grill66-deildinni á þessari leiktíð en liðið tapaði í undanúrslitum umspilsins gegn Herði og leikur því áfram í næst efstu deild á næstu leiktíð.

Sæþór er uppalinn á Selfossi og lék með liðinu í Olís-deildinni áður en hann skipti yfir til Gróttu sumarið 2024.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top