Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins tilkynnti 18 manna leikmannahóp sinn sem ferðast til Egyptalands og tekur þátt í tveimur vináttulandsleikjum gegn Egyptum í maí. Snorri Steinn sagði í viðtali við Handkastið að þær sjö breytingar á hópnum sem hann gerði hafi verið örlítið meiri en hann ætlaði sér í fyrstu. ,,Ýmir þarf að fara í sprautu og Viggó hefur ekki náð heilli heilsu og hann hefur verið að glíma við eitthvað. Janus Daði er að spila en er samt alls ekki nægilega góður og er í rauninni bara að spila leikina og gerir ekkert þess á milli. Hann þarf aðeins að skoða það betur. Síðan er Ómar Ingi og Elvar laskaðir og ég held að ég sé ekkert að tala af mér. Það er ekkert óeðlilegt að menn séu laskaðir á þessum tímapunkti," sagði Snorri Steinn og bætti við: ,,Það er fínt að geta gefið þeim smá pásu og vonandi nýtist það þeim í framhaldinu." En hafði hann valið þessa fimm leikmenn í hópinn ef þeir væru heilir heilsu? ,,Það stóð ekki til að velja þá alla. Ég var nánast búinn að ákveða það í kringum Svía leikina að velja ekki Gísla Þorgeir, hann spilaði mjög mikið þar. Planið var að hafa Janus í þessu verkefni en svo þarf maður líka að bera virðingu fyrir heilsu leikmanna og ég græði lítið á því að vera pönkast of mikið í þeim ef þeir mæta síðan laskaðir í næsta tímabil líka."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.