Brynjólfur Snær leggur skóna á hilluna
Brynjólfur Jónsson

Brynjólfur Snær Brynjólfsson hægri hornamaður Hauka hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Brynjólfur Snær varð bikarmeistari með Haukum á tímabilinu eftir sigur á ÍR í bikarúrslitunum en hans síðasti leikur á ferlinum var tap gegn nágrönnunum í FH í oddaleik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins á dögunum.

Brynjólfur Snær varð Íslandsmeistari með Haukum tímabilin 2014/2015 og 2015/2016 og þá varð hann þrívegis deildarmeistari með Haukum.

Brynjólfur sem er fæddur árið 1993 lék með uppeldisfélagi sínu Haukum allan sinn feril. Hann er annar uppaldi leikmaður Hauka sem leggur skóna á hilluna en Handkastið greindi frá því í gær að Adam Haukur Baumruk væri búinn að taka sömu ákvörðun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top