Alex Kári framlengir á Nesinu
Eyjólfur Garðarsson

Alex Kári Þórhallsson hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Gróttu til tveggja ára eða til loka tímabilsins 2028. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Alex Kári er tvítugur og getur bæði leikið sem skytta og hornamaður. Hann skoraði 17 mörk í vetur fyrir Gróttuliðið í Grill66-deildinni en liðið endaði í 2.sæti deildarinnar og féll úr leik í undanúrslitum umspilsins eftir tap gegn Herði 2-0.

,,Alex Kári kemur úr öflugum 2006 árgang hjá félaginu sem endaði í 2.sæti á Íslandsmótinu með 3.flokki á síðustu leiktíð. Liðið varð ennfremur bikarmeistari þar sem Alex Kári átti sannkallaðan stórleik," segir í tilkynningunni frá Gróttu.

,,Það eru góð tíðindi að Alex Kári verði áfram í Gróttu enda öflugur örvhentur leikmaður sem á eftir að blómstra. Alex er framtíðarleikmaður félagsins og eru miklar vonir bundnar við á næstu árum," segir ennfremur.

Andri Sigfússon tók á dögunum við liði Gróttu af Davíð Erni Hlöðverssyni en Andri þekkir vel til Alex en hann hefur þjálfað hann undanfarin ár í yngri flokkum félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top