Mikil tilhlökkun í hópnum
J.L.Long

Garðar Ingi Sindrason gæti leikið sinn síðasta leik fyrir FH í langan tíma en hann gengur í raðir þýska stórliðsins Gummersbach í sumar frá FH.

FH er 1-2 undir í úrslitaeinvíginu gegn Val en liðið tekur á móti Val í Kaplakrika í kvöld klukkan 19:30.

,,Mér líst mjög vel á leikinn, það er mikil tilhlökkun í hópnum og við ætlum okkur að mæta einbeittir og klárir frá fyrstu mínútu," sagði Garðar Ingi í samtali við Handkastið en hann hefur verið einn allra besti leikmaður FH á tímabilinu.

Allir leikir í einvíginu hingað til hafa unnist á heimavelli.

,,Auðvitað gefur heimavöllurinn eitthvað extra, Krikinn hefur reynst okkur vel í gegnum tíðina og þar líður okkur vel."

En hvað þarf FH að gera betur heldur en í síðasta leik þar sem Valur hafði betur?

,,Vörn og markvarsla þarf að tikka vel saman, svo þurfum að halda vel í boltann og hlaupa vel heim," en Valsarar treysta mikið á hraðan leik og hraðarupphlaup.

Ertu með einhver skilaboð til FH-inga í lokin?

,,Fjölmennum í Krikann í hvítum treyjum og tryggjum okkur oddaleik saman!"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top