Óvíst hvar Hákon Daði spilar á næsta tímabili
ÍBV

Óvissa ríkir hvar vinstri hornamaðurinn, Hákon Daði Styrmisson leikur á næstu leiktíð en Eyjamaðurinn gekk í raðir ÍBV um áramótin eftir dvöl erlendis síðustu ár.

Hann flutti heim af persónulegum um áramótin en hann eignaðist sitt fyrsta barn á dögunum með unnustu sinni og vildu þau eignast barnið á Íslandi. Var Hákon Daði í viðræðum við bæði Val og ÍBV fyrir áramót en á endanum fór hann til síns uppeldisfélags.

Hann gerði hinsvegar bara hálfs árs samning við ÍBV þar sem hann býr á höfuðborgarsvæðinu.

,,Það er allt opið eins og er," sagði Hákon Daði í samtali við Handkastið aðspurður út í það hvar hann mun spila á næstu leiktíð.

Handkastið greindi frá því í síðasta mánuði að nýliðar Víkings hafi sýnt Eyjamanninum áhuga. Hákon Daði viðurkenndi að hafa heyrt í Aðalsteini Eyjólfssyni þjálfara Víkings.

Ljóst er að það eru ekki mörg lið í Olís-deildinni sem vantar vinstri hornamann en Afturelding sagði upp samningi sínum við Ihor Kopyshynskyi og gætu þeir því verið eitt af félögunum sem hefði áhuga að fá Hákon Daða til liðs við sig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top