Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

FH - Valur (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: FH

Allt undir í kvöld og það er að duga eða drepast fyrir FH. Ef þeir tapa eru Valsmenn Íslandsmeistarar og sumarfrí bíður beggja liða. FH hafa engan áhuga á því að sjá Valsmenn fagna titlinum í Kaplakrika og munu þeir mæta dýrvitlausir til leiks. Magnús Óli varð fyrir ljótum meiðslum í síðasta leik og ég reikna ekki með honum í kvöld svo veikir Valsmenn klárlega en Bjarni Í Selvindi steig upp í síðasta leik. Þið eruð búin að sjá það í allt vor að ég er oddaleikjakall og ég heimta að fá oddaleik í einvíginu um þann stóra. FH vinna þetta með þrem í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top