Veisla fyrir leik FH og Vals í kvöld – Allir velkomnir
J.L.Long

Fjórði leikur í úrslitaeinvígi FH og Vals fer fram í Kaplakrika í kvöld klukkan 19:30.

Í tilefni af þeim leik ætla FH-ingar að slá upp veislu til að hita upp fyrir leikinn og bjóða alla velkomna, einnig Valsmenn.

Kaplakriki verður opnaður klukkan 18:00 og verður boðið upp á ýmsa rétti svo sem Hamborgara, Pizzur og Mexíkósúpu. Kaldir drykkir verða á boðstólum og rúsínan í pylsuendanum eru pallborðsumræður þar sem Ásbjörn Friðriksson og Vignir Stefánsson, sem þekkja svona einvígi betur en flestir, munu taka gesti í gegnum allt sem við megi búast í leiknum.

Dagskráin fer fram í sérstöku FAN ZONE svæði sem staðsett verður í veislusal FH. Þeir sem vilja tryggja sér miða í súpuna er bent á að forsala fer fram í gegnum Stubb.

Við hvetjum alla unnendur handbolta á Íslandi að leggja leið sína í Kaplakrika í kvöld og drekka í sig upplifunina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top