Basti nýr afreksþjálfari Hauka

Sebastian hefur verið ráðinn sem afreksþjálfari Hauka þar sem hann mun sinna einstaklingsþjálfun fyrir unga og upprennandi leikmenn deildarinnar. Sebastian mun því koma að og sinna bæði verkefnum sem snýr að yngri leikmönnum meistaraflokka og yngri flokka félagsins og hjálpa þeim í sinni þróun sem handknattleiksleikmenn, segir í tilkynningu Hauka.

Basti hefur verið meistaraflokksþjálfari síðustu ár en hann hætti nýverið með Grill 66 deildar kvennalið Víkings þar sem hann var árin 2024-2026. Hann þjálfaði bæði karlalið HK og Fram þar á undan.

Samkvæmt heimildum Handkastsins var Sebastian í viðræðum við Aftureldingu um að taka við kvennaliði félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top