
Óvissa ríkir um það hvort Jovan Kukobat verði áfram í herbúðum HK í Olís-deild karla á næstu leiktíð en Kukobat glímdi við meiðsli nær allt þetta tímabil og gat lítið spilað með liðinu í vetur. Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK sagði í samtali við Handkastið að það væri óvíst hvað yrði . Jovan lék sjö leiki með HK í vetur. Hann gekk í raðir félagsins fyrir síðustu leiktíð og var því að klára sitt annað tímabil hjá félaginu. ,,Það er ekki alveg komið á hreint ennþá. Hann er með tilboð frá okkur og því erfitt að segja um það," sagði Halldór Jóhann aðspurður að því hvort Jovan Kukobat yrði áfram í herbúðum HK. HK endaði í 8.sæti Olís-deildarinnar og tapaði gegn Val 2-0 í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins en liðið var hársbreidd frá því að vinna fyrsta leik liðanna og komast í 1-0 í einvíginu. Kukobat hefur víða komið við á ferlinum hér á landi en hann hefur meðal annars leikið með KA, Þór, Víking og Aftureldingu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.