
Handkastið greindi frá því á dögunum að Brynjólfur Snær Brynjólfsson væri búinn að leggja skóna á hilluna og myndi ekki leika með Haukum í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Brynjólfur sem er fæddur árið 1993 lék með uppeldisfélagi sínu Haukum allan sinn feril. Hann varð bikarmeistari með Haukum á tímabilinu eftir sigur á ÍR í bikarúrslitunum en hans síðasti leikur á ferlinum var tap gegn nágrönnunum í FH í oddaleik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins á dögunum. Brynjólfur Snær varð Íslandsmeistari með Haukum tímabilin 2014/2015 og 2015/2016 og þá varð hann þrívegis deildarmeistari með Haukum. Hann segir að tímabilið 2015/2016 sé hans eftirminnilegast tímabil á ferlinum. ,,Við urðum deildarmeistarar og síðan Íslandsmeistarar eftir oddaleik við Aftureldingu í úrslitum. Sá hópur var mjög þéttur og góður. Við fórum í tvær skemmtilegar Evrópuferðir til Ítalíu og Frakklands sem kryddaði tímabilið mikið. Að ógleymdum frábærum sigri í deildarbikarnum sáluga," sagði Brynjólfur Snær í samtali við Handkastið aðspurður út í eftiminnilegasta tímabilið. Hvernig gerir þú upp ferilinn? ,,Ég er bara nokkuð sáttur með ferilinn. Ég fékk að upplifa mörg stór augnablik og spila marga stóra leiki og fékk bæði að upplifa að vera í litlu og stóru hlutverki innan liðsins. Að sjálfsögðu hefði ég viljað vinna fleiri titla og mörg silfur svíða svolítið. Evrópuferðirnar standa líka upp úr þar sem maður fékk að ferðast til alls konar staða sem maður hefði annars aldrei ferðast til." Brynjólfur lék allan sinn feril með Haukum. Hann segir að ekkert annað hafi komið til greina á ferlinum. ,,Ekki nema mögulega á lánssamning á fyrri hluta ferilsins þegar ég var í litlu hlutverki hjá Haukum. Eftir á að hyggja held ég að það hefði getað verið gott að fara á lán þar sem ég var lengi að fá stórt hlutverk hjá Haukum. Það kom hins vegar aldrei til greina að skipta um félag og ég er mjög stoltur af því að hafa spilað allan minn feril með Haukum." ,,Ég hef fundið það svolítið síðustu tvö tímabil að ég hef verið að fara niður hæðina eins og eðlilegt er með hækkandi aldri. Ég fann að ég var farinn að gefa liðinu minna og minna inn á vellinum og þá fannst mér eðlilegra að yngri menn tækju við keflinu. Ég ákvað því í vetur að segja þetta gott eftir þetta tímabil." ,,Ég geng stoltur frá borði. Ég fékk að spila fyrir mitt félag allan minn feril og spila með mörgum góðum félögum og vinum. Af því er ég stoltur," sagði Brynjólfur að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.