Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Valur - FH (Fimmtudag 19:30) / Sigurvegari: FH Jæja það er komið að úrslitastundu! Oddaleikur framundan í kvöld um Íslandsmeistaratitilinn. Ég þykist vita að bæði lið vilji að ég spái þeim ekki sigri í þessari spá, veit ekki alveg hvernig ég á að lesa í það. Það er í raun ekkert eftir að segja í spám þessara liða. Ég held að sigur FH í síðasta leik hafi gefið liðinu mikið í trú að geta unnið þetta og ætla ég því að spá FH Íslandsmeistaratitlinum 2026, eftir framlengingu að sjálfsögðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.