Íslenska þríeykið í úrslitaeinvígið
Timon Peters

Íslenska þríeykið hjá Blomberg-Lippe lagði sitt af mörkum þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitum um þýska meistaratitilinn eftir sigur í oddaleik undanúrslitaeinvígsins gegn Thüringer.

Blomberg-Lippe og Thüringer áttust við í spennandi undanúrslitaeinvígi þar sem bæði lið höfðu unnið sitthvorar leikinn á heimavelli. Blomberg-Lippe hafði hinsvegar betur í oddaleik einvígsins á heimavelli í dag þegar liðið vann sannfærandi ellefu marka sigur 35-24.

Blomberg-Lippe er deildarmeistari og hefur því heimavallarrétt í úrslitaeinvíginu gegn Dortmund, sem gæti reynst dýrmætt. Liðið hefur nefnilega verið ósigrandi á heimavelli sínum í vetur, í öllum keppnum.

Sú sigurganga hélt áfram í dag þar sem liðið vann öruggan sigur. Elín Rósa Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen skoruðu fjögur mörk hvor og Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði eitt mark.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top