
Andri Snær Stefánsson lauk sínu fyrsta tímabili sem þjálfari KA í Olís-deild karla á dögunum en hann tók við liðinu síðasta sumar af Halldór Stefáni Haraldssyni. Andri Snær hafði verið aðstoðarmaður Halldórs Stefáns fyrir það. KA fór í undanúrslit bæði í Powerade-bikarnum og í úrslitakeppninni og þá endaði liðið í 5.sæti Olís-deildarinnar. Handkastið heyrði í Andra Snæ á dögunum og spurði hann út í tímabilið hjá KA. ,,Ég er mjög ánægður með liðið, við tókum fullt af skrefum fram á við. Við KA menn erum með kassann uppi eftir þetta tímabil. Við fórum inn í veturinn með þunnan hóp þar sem margir leikmenn voru meiddir í upphafi móts. Okkur var spáð 10. sæti og ljóst að önnur lið höfðu ekki mikla trú á okkur," sagði Andri Snær. ,,Ungir leikmenn fengu stór hlutverk auk þess að Morten Boe Linder og Giorgi voru fljótir að aðlagast," sagði Andri en Morten og Giorgi gengu í raðir KA fyrir tímabilið. ,,Þeir báðir eiga hrós skilið, algjörir fagmenn sem spila stórt hlutverk hjá okkur. Synd að þeir hafi báðir meiðst á lokaspretti mótsins ásamt Daða fyrirliða." ,,Fyrir áramót unnum við frábæra sigra og náðum að troðfylla KA-heimilið að nýju. Við bættum við Ágúst Elí, Dag Gauta og Ara Val í liðið um áramót, þéttum þannig raðirnar. Niðurstaðan er undanúrslit í Íslandsmótinu og í bikar. Margir leikmenn áttu frábært tímabil og bættu sig. Auðvitað er svekkjandi að hafa ekki farið lengra, við vorum grátlega nálægt því í bikarnum og hefðum átt að vinna heimaleikinn við Val í úrslitakeppninni. Við fórum illa að ráði okkar þar en Valur vann vissulega sanngjarnt þetta einvígi," sagði Andri en KA tapaði 3-0 gegn Val í undanúrslitum úrslitakeppninnar. ,,Það er mikill hugur í okkur KA mönnum eftir að hafa fengið lyktina af úrslitaeinvígum í stóru keppnunum. Langt síðan það var þannig síðast og helling til að byggja á fyrir næsta tímabil." En hvaða breytingar verða á liðinu í sumar? ,,Einar Rafn fer suður en hann var með mér í þjálfarateyminu ásamt því að spila lykilhlutverk á vellinum eftir að hann kom úr meiðslum. Mikill missir þar en ég vonast eftir að við náum að halda öðrum leikmönnum, við erum að skoða hvaða möguleikar eru í sambandi við liðsstyrk. Ég er rosalega ánægður með mína leikmenn, við erum stoltir að spila fyrir KA og elskum að spila í KA-heimilinu. Það er það sem KA á að snúast um, enda er þetta miklu meira en handbolti hjá okkur. Fólkið okkar man gömlu góðu dagana og vill sjá leikmenn spila með stolti og ákefð í gula búningnum. Þeir leikmenn sem koma til okkar þurfa að vera tilbúnir í þá vinnu með okkur. Við vorum með flesta áhorfendur að meðaltali í vetur, vil nota tækifærið og þakka öllu KA fólki fyrir að taka þátt í þessu með okkur," sagði Andri Snær að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.