Segist ekki vera í viðræðum við Aftureldingu
Egill Bjarni Friðjónsson

Handkastið hafði haft veður af því að Kári Kristján Kristjánsson sem lék með Þór í Olís-deild karla hafi verið í viðræðum við Aftureldingu sem þjálfari.

Handkastið heyrði í Kára Kristjáni á dögunum og hann þverneitaði fyrir það.

,,Ég hef ekkert rætt við þá. Ég hef hvorki heyrt í þeim né verið í viðræðum við þá," sagði Kári Kristján í samtali við Handkastið þegar hann var spurður að því hvort hann hafi sé í viðræðum við Aftureldingu um að vera í þjálfarateymi liðsins fyrir næstu leiktíð.

Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum sem þjálfari Aftureldingar eftir eitt ár í starfi eftir tímabilið. Afturelding hefur ekki enn tilkynnt nýjan þjálfara en Hrannar Guðmundsson fyrrum þjálfari Stjörnunnar hefur lengi verið nefndur sem líklegur eftirmaður Stefáns.

Bæði Ásbjörn Friðriksson og Patrekur Jóhannesson hafa verið orðaðir sem aðstoðarmenn Hrannars en Ásbjörn sagði í samtali við Handkastið á dögunum að hann væri ekki á leið í Mosfellsbæinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top