
Línumaðurinn reyndi Ágúst segir í viðtali við mbl.is, sem tekið var eftir að FH beið lægri hlut gegn Val um Íslandsmeistaratitilinn, að líklegast sé hann búinn að spila sinn síðasta handboltaleik. Ágúst viðurkennir í viðtalinu að líkaminn sé farinn að segja stopp eftir langan og erfiðan feril þar sem meiðsli hafa tekið sinn toll undanfarin ár. Hann segir að staðan sé einfaldlega þannig núna að hann eigi erfitt með að sjá sig halda áfram. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna í íslenska boltanum en viðurkennir þó að það sé orðið þreytt að taka við þessum silfurverðlaunum en þessi eru hans fjórðu á ferlinum og það venjist illa. Hann talar einnig um hversu erfitt það sé fyrir íþróttamenn að taka ákvörðunina um að hætta. Sérstaklega þegar handboltinn hefur verið svona stór hluti af lífinu í áratugi en hann segir þó að FH séu í góðum málum fyrir framtíðina og liðið eigi eftir að gera stórkostlega hluti. Það er ákveðin kynslóð að hverfa úr íslenskum handbolta um þessar mundir. Leikmenn sem hafa verið andlit liðanna sinna árum saman eru að kalla þetta gott og leggja skónna á hilluna margfrægu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.