Lið Kötlu Maríu breytir um nafn
Eyjólfur Garðarsson

Danska handknattleiksfélagið Holstebro Håndbold, þar sem Katla María Magnúsdóttir leikur, hefur ákveðið að breyta nafni sínu. Frá og með næsta tímabili mun félagið ganga undir heitinu Nordvestjysk Elite.

Katla María gekk í raðir félagsins síðasta sumar eftir að kærasti hennar, Jóhannes Berg Andrason gekk í raðir Tvis Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni. Liðið vann dönsku B-deildina á nýafstöðnu tímabili og leikur því í efstu deild á næstu leiktíð. Þar keppir liðið undir nýju nafni.

Samkvæmt tilkynningu frá félaginu felur nafnabreytingin í sér meira en einfalt útlitsbreytingu. Markmiðið er að byggja upp sterkan vettvang fyrir efnilegar handknattleikskonur á norðvesturhluta Jótlands og gera félagið að aðlaðandi valkosti fyrir leikmenn á svæðinu.

Framkvæmdastjórinn Morten Villadsen segir áhersluna ekki eingöngu liggja í landfræðilegri staðsetningu heldur í því að skapa tækifæri fyrir konur til að vaxa og þróast í íþróttinni og láta drauma sína um að spila handbolta á hæsta stigi rætast.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top