

Agnar Smári Jónsson sem varð í síðustu viku Íslandsmeistari með uppeldisfélagi sínu Val hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þetta staðfestir hann með færslu sinni á Instagram. ,,Ekki hægt að biðja um betri endi TAKK fyrir mig handbolti *pistill í bígerð," skrifar Agnar Smári undir mynd sem hann birti á Instagram síðu sinni. Athygli vakti fyrr á þessu tímabili þegar Handkastið greindi rá því að Valur hafi nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi Agnars Smára sem var með samning við Val til sumarsins 2027. Það var því ljóst að þetta yrði hans síðasta tímabil með Val. Nú hefur hann hinsvegar ákveðið að segja þetta gott og kveðja ferilinn með bæði Íslands- og deildarmeistaratitli. Agnar Smári var í litlu hlutverki í liði Vals í vetur og sérstaklega eftir komu Arnórs Snæs Óskarssonar til Vals á miðju tímabili. Agnar Smári glímdi við meiðsli lengi vel á tímabilinu en var í leikmannahópi Vals í úrslitakeppninni en kom lítið við sögu. Agnar Smári er margfaldur Íslands- og bikarmeistari bæði með ÍBV og Val og þá varð hann Evrópubikarmeistari með Val á sínum tíma.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.