Róbert Örn yfirgefur HK
Sævar Jónasson

Markvörðurinn, Róbert Örn Karlsson yfirgefur HK í sumar og leikur ekki með liðinu í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK í samtali við Handkastið á dögunum.

Róbert Örn gekk alfarið í raðir HK frá Fram sumarið 2022 en þar áður lék hann á láni hjá félaginu eitt tímabil og hefur því verið hjá félaginu síðustu fimm tímabil. Fyrstu þrjú árin lék hann undir stjórn Sebastians Alexanderssonar en síðustu tvö tímabil hefur Halldór Jóhann Sigfússon stýrt liði HK.

HK endaði tímabilið með fjóra markmenn en því auk Róberts voru Jovan Kukobat, Brynjar Vignir Sigurjónsson og Patrekur Guðni Þorbergsson í röðum félagsins.

Róbert lék alla leiki HK í vetur og var með rúmlega 26% hlutfallsmarkvörslu í vetur.

Miklar breytingar hafa orðið á liði HK frá síðasta tímabili og má búast við mikið breyttu HK liði í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top