
Línumaðurinn, Þorvaldur Tryggvason hefur framlengt samningi sínum við Aftureldingu. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í kvöld. ,,Það gleður okkur að tilkynna það að Þorvaldur Tryggvason hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Aftureldingar um að leika með liðinu næstu tvö árin," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu. Þorvaldur kom til liðsins fyrir þremur tímabilum og hefur leikið 92 leiki fyrir félagið og skorað 105 mörk. ,,Þorvaldur er gríðarlega mikilvægur varnarlega og getur spilað á báðum endum vallarins. Þorvaldur er mikill leiðtogi og er mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur félagsins. Það eru miklar gleðifréttir að Þorvaldur hafi ákveðið að framlengja við félagið og við hlökkum til að sjá hann leika áfram í rauðu treyjunni," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu en liðið er án þjálfara sem stendur eftir að Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum eftir tímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.