
Þrátt fyrir slæma byrjun á seinni hálfleik sneri íslenska landsliðið taflinu sér í vil og vann eins marks endurkomu sigur í fyrri vináttulandsleik sínum gegn Egyptum í Kaíró í dag. Seinni leikur þjóðanna fer fram á föstudaginn. Viktor Gísli Hallgrímsson var valinn besti leikmaður leiksins af gestgjöfum Egypta en staðan var jöfn 14-14 í hálfleik eftir að Íslandi hafi mest náð þriggja marka forystu í upphafi leiks en heimamenn í Egyptalandi náði aldrei forystu í fyrri hálfleiknum. Egyptar byrjuðu seinni hálfleikinn hinsvegar töluvert betur og náði snemma fjögurra marka forystu í stöðunni 21-17. Íslenska landsliðið lét það ekki hafa áhrif á sig en eltingarleikurinn skilaði sér í eins marks sigri þegar upp var staðið en Orri Freyr Þorkelsson skoraði 31. mars Íslands úr hraðaupphlaupi og það reyndist sigurmark leiksins. Lokatölur 31-30 en þetta var í fyrsta skipti sem Ísland komst yfir í seinni hálfleik. Kristján Örn Kristjánsson var markahæstu í liði Íslands með sex mörk en Þorsteinn Leó Gunnarsson og Teitur Örn Einarsson komu næstur með fimm mörk hvor. Jón Bjarni Ólafsson skoraði tvö mörk í leiknum en það voru hans fyrstu mörk fyrir íslenska landsliðið í sínum fyrsta landsleik. Viktor Gísli stóð í marki Íslands allan leikinn að undanskildu einu vítakasti en hann varði 22 skot og var með 43% markvörslu. Ahmed Adel var markahæstur í liði Egypta með sex mörk ásamt Ahmed Hesham.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.