
Hafnfirðingurinn, Ísak Rafnsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en þetta tilkynnti hann á samfélagsmiðlinum, Facebook í gær. Ísak sem er uppalinn hjá FH og lék þar upp alla yngri flokka félagsins. Hann lék með meistaraflokki félagsins til ársins 2018 þegar hann samdi við austurríska félagið Schwaz. Hann lék með Schwaz eitt tímabil þar til hann snéri aftur heim í FH. Hann lék með FH þar til hann færði sig um set til ÍBV sumarið 2022 og hefur leikið með Eyjamönnum undanfarin ár og varð Íslandsmeistari með liðinu 2023 eftir sigur á Haukum í úrslitaeinvíginu í oddaleik. Meiðsli hafa haft mikil áhrif á spila mínútur Ísaks með ÍBV síðustu tvö tímabil. ,,Skórnir á hilluna (staðfest). Eftir langan feril, fullt af sigrum, nokkur töp og endalaust af minningum segi ég glaður að nú sé komið gott. Er mjög þakklátur fyrir tímann sem ég átti á parketinu og stoltur af því sem ég hef afrekað," skrifaði Ísak í Facebook færslu sinni. Ísak lék með öllum yngri landsliðum Íslands á sínum yngri árum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.