Íslenski hópurinn valinn fyrir EM U18 í sumar
Egill Bjarni Friðjónsson

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon þjálfarar U18 ára landsliðs karla hafa tilkynnt hvaða 16 leikmenn munu keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumótinu í sumar. Keppnin verður haldin í Serbia dagana 29. júlí til 9. ágúst.

Kunnugleg nöfn eru í hópnum sem hafa leikið stór hlutverk í Olís-deild karla. Þar ber hæst að nefna leikmenn á borð við Frey Aronsson hjá Haukum, Gunnar Róbertsson hjá Val og Ómar Darra Sigurgeirsson hjá FH sem allir léku stór hlutverk hjá þessum þremur félögum í vetur en Ómar Darri Sigurgeirsson fór fyrir liði FH í úrslitaeinvíginu gegn Val sem Gunnar Róbertsson og liðsfélagar hans í Val unnu.

Einnig hefur Morgan Goði Garner verið varamarkvörður ÍBV í vetur og þá hefur Anton Frans Sigurðsson leikið í hægri horni ÍBV. Matthías Dagur Þorsteinsson fékk stærra hlutverk í liði Stjörnunnar þegar leið á veturinn og þá var Patrekur Smári Arnarsson leikmaður ÍR í hlutverki hjá liðinu í vetur þá sérstaklega varnarlega.

Þá vekur athygli að hinn 15 ára, Brynjar Narfi Arndal hjá FH er valinn í hópinn en það er ekki oft á þessum árum sem valdir eru yngri leikmenn í U18 ára landslið Íslands.

Þrír markmenn eru í hópnum og koma tveir þeirra frá ÍBV, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson, þá er Anton Máni Francisco Heldersson markvörður Vals í hópnum.

Þrír leikmenn hafa síðan verið valdir sem varamenn inn í hópinn og munu sennilega æfa með liðinu í aðdraganda keppninnar.

Leikmannahópurinn er eftirfarandi : 

Alex Unnar Hallgrímsson, Fram
Anton Frans Sigurðsson, ÍBV
Anton Máni Francisco Heldersson, Valur
Bjarki Snorrason, Valur
Brynjar Narfi Arndal, FH
Freyr Aronsson, Haukar
Gunnar Róbertsson, Valur
Kristófer Tómas Gíslason, Fram
Logi Finnsson, Valur
Matthías Dagur Þorsteinsson, Stjarnan
Morgan Goði Garner, ÍBV
Ómar Darri Sigurgeirsson, FH
Patrekur Smári Arnarsson, ÍR
Ragnar Hilmarsson, Selfoss
Sigurður Atli Ragnarsson, Valur
Sigurmundur Gísli Unnarsson, ÍBV
 
Varamenn
Aron Leo Guðmundsson, Selfoss
Kári Steinn Guðmundsson, Valur
Örn Kolur Kjartansson, ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top